Fara beint í efni

Fagbréf

Fagbréf er staðfesting á færni þinni í starfi.

Fagbréf atvinnulífsins er afrakstur samvinnu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA), Samtaka atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Rafmennt annast framkvæmd matsins en fagbréf atvinnulífsins eru gefin út af FA sem vottar að réttri aðferðafræði hafi verið beitt við framkvæmd mats og starfsþjálfunar.

Í desember 2024 var undirritaður nýr kjarasamningur á milli Samtaka atvinnulífsins og Rafiðnaðarsambands Íslands fyrir starfsfólk í tæknigreinum en í samningnum er kveðið á um að í stað launataxta (annarra en grunnlauna) og tengdra ákvæða kjarasamnings, s.s. um álagsgreiðslur vegna ábyrgðar, menntunar og annarra þátta, sé heimilt að innleiða hæfnilaunakerfi samningsaðila í einstökum fyrirtækjum.

Í hæfnilaunakerfinu verður hvoru tveggja kveðið á um viðmið og efnisþætti sem lagðir verða til grundvallar launum og hvernig verður staðið að mati vegna launaþróunar.

Hvor aðili; starfsfólk á grundvelli meirihlutastuðnings eða fyrirtæki, getur farið fram á viðræður um upptöku nýs launakerfis.

Hvernig fer mat til fagbréfs fram?

  1. Umsókn og sjálfsmat

    Umsækjandi sækir um mat til fagbréfs fyrir viðkomandi starf og skilar inn sjálfsmati fyrir starfið.

  2. Raunfærnimatsviðtal

    Boðað er til raunfærnimatsviðtals með matsaðila þar sem hæfni umsækjenda er metin gagnvart matslista starfsins. Ef tilefni þykir til er verkefni eða próf lagt fyrir umsækjanda til staðfestingar á hæfni.

  3. Þjálfun og fræðsla

    Í framhaldi fer fram þjálfun og fræðsla sem tekur mið af niðurstöðum matsins nema öllum hæfniviðmiðum sé náð.

  4. Fagbréf atvinnulífsins

    Þegar öllum hæfniviðmiðum starfsins er náð er færnin staðfest með Fagbréfi atvinnulífsins fyrir viðkomandi starf.

Áður en þú sækir um

Farðu yfir atriðin hér að neðan og hakaðu við hvert þeirra. Hnappurinn á skráninguna birtist þegar þú hefur hakað við þau öll.

0 af 3 atriðum lokið
  1. Grunn-inntökuskilyrði í ferlið er 3 ára starfsreynsla í greininni fyrir störf á þrepi 3 og 2 ár fyrir störf á þrepi 2. Við hvetjum þó alla sem telja sig eiga erindi til að sækja um því hægt er að gera undantekningu á ofangreindri reglu ef mikil reynsla er til staðar þrátt fyrir styttri starfsaldur.

  2. Sækja um

    Hakaðu við öll atriðin hér að ofan til að fá hlekkinn á umsóknina.

Umsjón