---
title: "Uppsetning á sviði og sviðsbúnaði"
description: "Kjarni Tilgangur starfsins er að annast uppsetningu á sviði, sviðsmyndum og búnaði í leikhúsum, á tónleikum og öðrum viðburðum á sviði þannig að verkið sé unnið af fagmennsku, öryggi, nákvæmni og að…"
canonical: "https://fagbref.rafmennt.is/uppsetning-a-svidi-og-svidsbunadi"
---

![Uppsetning á sviði og sviðsbúnaði](https://fagbref.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/706d00a0-74df-4dfe-a300-dbde695355f2)

# Uppsetning á sviði og sviðsbúnaði

<a id="kjarni"></a>

### Kjarni

Tilgangur starfsins er að annast uppsetningu á sviði, sviðsmyndum og búnaði í leikhúsum, á tónleikum og öðrum viðburðum á sviði þannig að verkið sé unnið af fagmennsku, öryggi, nákvæmni og að öryggisreglum sé ávallt fylgt. Starfið felst í uppsetningu og frágangi sviðs, sviðsmynda og öðrum búnaði ásamt tilfærslu sviðsmynda, milli atriða, á viðburðum og æfingum. Tryggja skal að umgjörð og ásýnd sviðsins sé eins og til er ætlast og að allur búnaður sé á réttum stað á réttum
tíma.

Unnið er með listrænni stjórn, flytjendum og öðrum deildum bæði sjálfstætt sem og í teymi. Starfið krefst samstarfsfærni, nákvæmra vinnubragða og lausnamiðaðrar nálgunar. Lykilatriði er að hafa skilning á framkvæmd viðburðar sem heild og geta brugðist hratt og faglega við breytingum og óvæntum uppákomum. Notuð eru verkfæri og stundum minni vinnuvélar í starfinu. Vinnuaðstæður geta verið krefjandi og krafist líkamslegs þols. Vinna getur farið fram í myrkri, hávaða, mikilli hæð eða lágri lofthæð, undir tímapressu, á óreglulegum vinnutíma og/eða með
þungan búnað.

Hæfniþættir sem birtir eru í starfaprófíl eru almennt á **þrepi 2** miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

[Starfaprófíll - Uppsetning á sviðið og sviðsbúnaði](https://www.rafmennt.is/media/id/531567c4-a014-4718-82a2-6d3d7c9576e7)

[Matslisti - Uppsetning á sviðið og sviðsbúnaði](https://www.rafmennt.is/media/id/1000ce83-4661-4493-8e42-14f4cdc8607b)

---

<a id="vidfangsefni"></a>

### Viðfangsefni

**Undirbúningur**
• Upplýsingafundur- farið yfir verkefni dagsins
• Koma sviðsmynd og pöllum í rétta stöðu
• Æfingar á hreyfingum sviðsmynda á sviði
• Æfingar á notkun sviðsbúnaðar
• Flytja sviðmynd og annan búnað úr/í geymslu
• Greina og finna lausnir á viðfangsefnum við uppsetningu sviðs, sviðsmynda, -búnaðar
• Útbúa keyrslulista
• Merkja staðsetningar sviðsmyndar á sviði

**Öryggi og viðhald**
• Fara yfir öryggisatriði viðburðar/sýningar
• Ráðstafanir til að draga út fallhættu
• Viðhald á sviðspöllum
• Viðhald og skoðun á sviðsbúnaði
• Bregðast við neyðarástandi
• Tryggja aðgang að flóttaleiðum
• Viðhald á sviðsmynd
• Þekkja og fara eftir öryggisreglum viðburðarhúss

**Uppsetning og keyrsla á viðburðum/sýningum**
• Innstilling sviðs miðað við forstillingarlista
• Yfirfara festingar
• Yfirfara merkingar
• Bregðast við óvæntum uppákomum og eða breytingum í keyrslu/uppsetningu
• Skiptingar milli atriða í viðburði/sýningu
• Stýra hreyfanlegum búnaði og sviðsmyndum
• Flytja sviðmynd og annan búnað úr/ í baksvið

**Reglubundin verkefni og frágangur í viðburðahúsi**

• Samvinna við aðrar deildir
• Miðlun upplýsinga innan/ utan deildar
• Frágangur og tiltekt eftir æfingar/viðburði/sýningar
• Þrif á sviðum
• Förgun sviðsmynda og búnaðar
• Endurnýting sviðsmynda og búnaður
• Yfirferð birgða
• Innheimta verkfæra

Source: https://fagbref.rafmennt.is/uppsetning-a-svidi-og-svidsbunadi
