---
title: "Myndataka"
description: "Kjarni Tilgangur starfsins er myndataka fyrir sjónvarp og aðra miðla. Greining á hvaða búnaðar er þörf fyrir hvert verkefni og hverjar vinnuaðstæður eru. Tökur fara fram inni sem og úti. Ítarleg…"
canonical: "https://fagbref.rafmennt.is/myndataka"
---

![Myndataka](https://fagbref.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/706d00a0-74df-4dfe-a300-dbde695355f2)

# Myndataka

<a id="kjarni"></a>

### Kjarni

Tilgangur starfsins er myndataka fyrir sjónvarp og aðra miðla. Greining á hvaða búnaðar er þörf fyrir hvert verkefni og hverjar vinnuaðstæður eru. Tökur fara fram inni sem og úti. Ítarleg þekking á verkferlinu svo efnið skili sér í réttum gæðum og öryggi við tökur sé eins mikið og mögulegt er. Starfið felur í sér verkefni sem ýmist er sinnt sjálfstætt eða í samstarfi við tækni- og dagskrárgerðarfólk á tökustað og í undirbúningi fyrir tökur. Unnið er með framleiðslu til að ákvarða hvað skal mynda og myndlegum úrlausnum með samstarfsfólki.

Starfið krefst þekkingar á myndvinnslu, lýsingu og hljóðupptöku auk þekkingar á tækjabúnaði, tækni því tengdu og þróun þess. Velur og stjórnar tækjum sem þarf til að besta mögulega mynd náist. Vinnan getur falið í sér gagnaöflun sem nýtist til að skýra/skreyta frásögn eða atburði og safna heimildum til varðveislu. Starfið krefst viðbragðsflýtis og lausnamiðaðra vinnubragða til að grípa augnablikið í mynd. Vinnuaðstæður geta verið krefjandi með tilliti til veðurs og umhverfisþátta.

Hæfniþættir sem birtir eru í starfaprófíl eru almennt á **þrepi 3** miðað við hæfniramma um íslenska menntun. Starfið er á **hæfniþrepi 3**.

[Starfaprófíll - Myndataka](https://www.rafmennt.is/media/id/4ba92d9c-3d40-4109-9ec5-ea80901317cc)

[Matslisti - Myndataka](https://www.rafmennt.is/media/id/fb735217-0c18-4afa-9077-ca91af06933d)

---

<a id="vidfangsefni"></a>

### Viðfangsefni\*

**Undirbúningur verkefnis/forvinna**
- Yfirferð verkefnis með samstarfsfólki
- Skoða dagskrá
- Hugmyndavinna
- Áætla magn myndefnis
- Tökuplan
- Kynna sér vettvang
- Mat á áhættu í verkefni
- Æfingar með eða án myndatöku

**Tæknilegur undirbúningur**
- Yfirferð og samantekt á tækjum og tólum í samræmi við verkefni
- Koma tæknibúnaði á tökustað
- Setja upp tækjabúnað
- Tæknirennsli
- Áætla gagnaþörf verkefnis (rafhlöðu)
- Tryggja öryggi þannig að tæki og tól skapi ekki hættu á tökustað

**Upptökur (verkefnið)**
- Fréttir/Þáttagerð/Leikið efni/Íþróttir
- Útsendingarbíll
- Viðfangsefni líðandi stundar
- Tökur með flygildi (dróna)
- Í myndveri
- Á vettvangi (inni eða úti)
- Stýra einni myndavél
- Fjölmyndavélavinnsla
- Stilling skerpu / Römmun á mynd
- Lýsing
- Samvinna við: framleiðendur, þáttastjórnendur og/eða leikstjóra
- Vinnur með fréttastjóra og fréttamanni

**Gæðaeftirlit**
- Regluleg yfirferð á tækjum og efni á meðan upptöku stendur
- Vakandi fyrir tækninýjungum og þróun
- Tilkynna bilanir á tækjum
- Eftirfylgd með gæðum efnis með tilliti til litgreiningar

**Frágangur**
- Ganga frá tækjum
- Skila myndefni
- Kanna stöðu tækja
- Hlaða batterý
- Þrif

\*viðfangsefnin hér að ofan eru rakin í styttra máli en í starfaprófíl.

Source: https://fagbref.rafmennt.is/myndataka
