---
title: "Ljóstækni"
description: "Kjarni Tilgangur starfsins er að setja upp og taka niður ljósabúnað á öruggan hátt til að veita þá lýsingu sem krafist er við hvers konar viðburði. Grunnkunnátta á rafstraumi og rík öryggisvitund er…"
canonical: "https://fagbref.rafmennt.is/ljostaekni"
---

![Ljóstækni](https://fagbref.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/65155325-47d6-4949-a66a-20a41c15d2ba)

# Ljóstækni

<a id="kjarni"></a>

### Kjarni

Tilgangur starfsins er að setja upp og taka niður ljósabúnað á öruggan hátt til að veita þá lýsingu sem krafist er við hvers konar viðburði. Grunnkunnátta á rafstraumi og rík öryggisvitund er mikilvæg. Öll uppsetning ljósabúnaðar skal uppfylla öryggiskröfur og þarfir verkefnis, vera í samræmi við óskir verkkaupa og ljósahönnuðar. Þekking á virkni búnaðar og færni til að leysa úr algengum og minniháttar bilunum búnaðar.

Bilanagreining og viðhald ljósabúnaðar getur verið nauðsynleg ásamt þekkingu á öryggisstöðlum (kröfum) til að valda ekki slysum á fólki eða skemmdum á búnaði. Þekking á verkferlum við óhöpp eða slys. Reynsla af og geta til að lesa úr teikningum, geta sótt upplýsingar úr handbókum og leggja mat á rafmagns- og dreifikerfi. Þekkja virkni helstu tækja í netsamskiptum, hug- og vélbúnað sem þörf er á í stýringu ljósabúnaðar.

Ýmist er unnið í teymi eða sjálfstætt. Reyndur ljóstæknir verkstýrir teymi ljóstækna í stærri verkefnum og leiðbeinir nýliðum. Starfið krefst mikilla samskipta og samvinnu við hönnuði, samstarfsfólk og verkkaupa. Mikilvægt að geta unnið á skilvirkan hátt undir álagi.

Ýmist er unnið innan eða utanhúss, vinnuaðstæður geta verið mjög mismunandi, jafnvel krefjandi og áhættusamar. Kostur að geta unnið við fjölþjóðleg verkefni.

**Annað:** Staðall IST200: 2020 eins og við á fyrir ljóstækni.

Hæfniþættir sem birtir eru í starfaprófíl eru almennt á **þrepi 3** miðað við hæfniramma um íslenska menntun.

[Starfaprófíll - Ljóstækni](https://www.rafmennt.is/media/id/070312a5-8ba7-44e3-a80d-71f2ccfb4db1)

[Matslisti - Ljóstækni](https://www.rafmennt.is/media/id/23b22ee0-1ce5-4e44-91de-0d972176b914)

---

<a id="vidfangsefni"></a>

### Viðfangsefni

**Undirbúningur / skipulagning**
- gera gátlista fyrir búnað viðburðar
- lesa úr teikningum og öðrum gögnum frá hönnuði eða verkefnastjóra
- kanna aðgang að rafmagni á verkstað
- panta eða sækja búnað af lager
- kanna aðstæður á verkstað

**Á viðburðarsvæði**
- Undirbúningur / fyrir viðburð
- gæta öryggis við uppsetningu
- uppsetning búnaðar í samræmi við teikningu
- stilla ljósabúnað og fókusera ljós
- tengja ljós, rafmagn og stýrimerki
- fylgja skipulagi um rafmagnsdreifingu og strengþörf
- setja upp og tengja annan viðeigandi búnað
- almennt viðhald og þrif á búnaði
- kanna virkni búnaðar fyrir viðburð
- merkja kapla
- ganga snyrtilega frá snúrum og köplum fyrir viðburð
- setja upp ratlýsingu þar sem við á
- aðstoða ljósahönnuð og forritara

**Framkvæmd á viðburði**
- stjórna ljósaborði
- stjórnun á eltiljósi
- vöktun á búnaði
- bregðast við bilunum á búnaði
- Frágangur / annað eftir viðburð
- ganga frá búnaði og merkja ef við á
- skrá vistun upplýsinga með tilliti til enduruppsetningar
-samskipti og endurmat

**Frágangur / annað eftir viðburð**
- ganga frá búnaði og merkja ef við á
- skrá vistun upplýsinga með tilliti til enduruppsetningar
- samskipti og endurmat

Source: https://fagbref.rafmennt.is/ljostaekni
